Viðskipti innlent

Uppfært mat á Singer & Friedlander

Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hefur uppfært lánshæfiseinkunnir Singer & Friedlander, banka Kaupþings í Bretlandi. Stuðningseinkunn bankans hækkar um eitt sæti í 2. Þá fær bankinn langtímaeinkunnina A en skammtímaeinkunnina F1.

Fitch segir uppfært mat endurspegla samþættinguna við Kaupþing, sem keypti bankann fyrir tveimur árum.

Horfur eru stöðugar, að mati Fitch.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×