Viðskipti innlent

FL Group tekur 28 milljarða lán

FL Group undirritaði í dag 330 milljóna evra lánssamning til þriggja ára við bandaríska fjárfestingabankann Morgan Stanley. Þetta jafngildir 28 milljörðum króna og er fjármögnun vegna kaupa á hlutafé í Glitni.

Í tilkynningu frá FL Group segir að félagið hafi fjármagnað með langtímalánum alla hlutafjáreign sína í bankanum, sem er stærsta eign félagsins.

Haft er eftir Hannesi Smárasyni, forstjóra FL Group, að fjármögnunin auki sveigjanleika FL Group til fjárfestinga til muna og styrki lausafjárstöðu félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×