Viðskipti innlent

Bréf í Føroya Banka hækka um 25 prósent

Kauphöll Íslands.
Kauphöll Íslands.

Føroya Banki var skráður í Kauphöll Íslands og kauphöllina í Danmörku í morgun. Opnunargengi bréfa í bankanum stóð í 220 krónum á hlut. Gengið tók kipp stuttu eftir opnun viðskipta í Kauphöllinni og voru fyrstu viðskipti með bréf í félaginu upp á 240 krónur á hlut.

Bréfin hafa lækkað síðan þá og stóð í 230 krónum á hlut skömmu eftir að viðskipti hófust og hefur hækkað um rúm 25 prósent frá því viðskipti með bréf í Føroya Banka hófust í morgun.

Við hlutafjárútboð í bankanum í síðustu viku bættust 15.000 nýir hluthafar við í hluthafahóp Føroya Banka, þar af um 6.200 Íslendingar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×