Viðskipti innlent

Straumur selur í Betson

Straumur-Burðarás ætlar að selja hlut sinn í sænska leikja- og fjárhættuspilafyrirtækinu Betsson. Hluturinn er nú þegar í sölumeðferð hjá Carnegie og SEB Enskilda bank í Svíþjóð.

Straumur á rúman 29 prósenta hlut í Betsson og nemur markaðsvirði hans 4,4 milljörðum króna.

Greiningardeild Landsbankans bendir á í Vegvísi sínum í dag að gengi bréfa í Betson hafi lækkað um rúmlega eitt prósent í OMX kauphöllinni í dag. Á sama tíma hækkaði sænska úrvalsvísitalan um 0,6 prósent.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×