Skoða sölu á Dow Jones 1. júní 2007 08:30 Rupert Murdoch.
Bandaríska Bancroft-fjölskyldan, sem á meirihluta í útgáfufélaginu Dow Jones og gefur meðal annars út samnefnda fréttaveitu og dagblaðið Wall Street Journal, segist munu hugleiða yfirtökutilboð fjölmiðlajöfursins Ruperts Murdoch í félagið. Hún muni sömuleiðis skoða önnur tilboð. Rupert Murdoch, forstjóri fjölmiðlasamsteypunnar News Corporation, lagði fram fimm milljarða dala, um 320,7 milljarða króna, yfirtökutilboð í bandaríska útgáfufélagið í byrjun maí. Fjölskyldan, sem í krafti eignahlutar síns fer með 64 prósent atkvæðaréttar, hefur verið sögð mótfallin tilboðinu. Enginn í fjölskyldunni hefur hins vegar tjáð sig opinberlega um málið þar til í vikunni. Í tilkynningu sem Bancroft-fjölskyldan sendi frá sér segir að hún hafi sæst á að hag Dow Jones geti verið betur borgið með samvinnu eða samruna með öðrum samsteypum, þar á meðal New Corporation. Breska ríkisútvarpið segir Bancroft-fjölskylduna hafa óttast að orðspor Wall Street Journal gæti beðið hnekki kæmist það í hendur Murdochs. Hún ætli hins vegar að funda með fjölmiðlamógúlnum og leita leiða til að vernda ristjórnarlegt frelsi blaðsins gangi salan á því eftir.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira