Mamma barði hákarlinn í klessu Óli Tynes skrifar 24. maí 2007 15:58
Fimm barna áströlsk móðir barði hákarl svo fast í hausinn með myndavél sinni að hann sleppti taki sínu á fæti hennar og synti burt frá henni og tveimur sonum hennar. Becky Cooke er þrjátíu og átta ára gömul. Hún var ásamt fjölskyldu sinni að vaða í sjónum við ströndina í Perth, þegar hún fann eitthvað skella á fæti sínum af miklum þunga. Hún fann ekki til neins sársauka í fyrstu en þegar hún leit niður sá hún að sjórinn var blóðlitaður og að fótur hennar var í gininu á tæplega þriggja metra hákarli. Becky hélt á þriggja ára gömlum syni sínum og eldri sonur hennar var að leika sér við hlið hennar. "Það eina sem ég hugsaði um var að reka hákarlinn burt áður en hann næði drengjunum mínum," sagði Becky við AP fréttastofuna. Hún lét því myndavél sína dynja á haus hákarlsins, sem hrökk undan og synti burt. Sjálf gat hún ekki tekið nema tvö skref til lands áður en hún datt, enda vöðvarnir í fæti hennar stórskaddaðir. Eiginmaður Beckyar kom henni á sjúkrahús í Perth, þar sem hún gekkst undir mikla aðgerð. Það kemur í ljós síðar hvort hún heldur fætinum.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira