Draugabílstjóri í Danmörku mætir fyrir rétt Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 22. maí 2007 09:44 E45 á Jótlandi MYND/Nyhedsavisen
Fertugur karlmaður sem varð fjórum að bana á E45 þjóðveginum í Danmörku síðastliðinn sunnudag, mætir fyrir rétt í dag. Maðurinn var undir áhrifum áfengis þegar hann keyrði yfir á öfugan vegarhelming við Litlubeltisbrúnna á Jótlandi. Hann keyrði um 18 km leið á móti umferðinni áður en hann hafnaði framan á fólksbíl. Ökumenn sem keyra á móti umferð með þessum hætti eru víða erlendis nefndir draugabílstjórar. Í bílnum voru tvö pör frá Fjóni sem voru látin þegar sjúkralið kom á vettvang. Annað þeirra skilur eftir sig tvö börn, þriggja og sex ára. Hin konan í bílnum var barnshafandi og komin langt á leið. Lögreglu var tilkynnt um hinn vítaverða akstur mannsins af ökumanni sem keyrði samsíða honum á réttum vegarhelmingi. Tilkynningin kom of seint til að lögregla næði að koma í veg fyrir áreksturinn. Þá hafði hann þegar keyrt fram hjá Kolding, Vejle og Fredericia. Draugabílstjórinn slasaðist við áreksturinn og liggur á sjúkrahúsi. Hann mun þó mæta við réttinn í dag þar sem hann verður ákærður fyrir manndráp af gáleysi og að stofna lífi annarra í hættu. Hámarksdómur fyrir brotin er átta ára fangelsi. Í tveimur svipuðum málum frá árinu 2005 fengu ölvaðir ökumenn 18 mánaða fangelsisdóm fyrir manndráp af gáleysi.
Erlent Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira