Vilja að herinn verndi hvalina Jónas Haraldsson skrifar 22. maí 2007 07:54
Stjórnarandstæðingar í Ástralíu sögðu í nótt að ef þeir komist til valda muni þeir senda herskip á umdeild hafsvæði við Suðurskautslandið til þess að koma í veg fyrir að Japanir geti þar veitt hvali. Þeir segja allt of mikið hafa verið sagt í Alþjóðahvalveiðiráðinu og ekkert gert. Núna sé komið að því gera eitthvað í málinu. Herskipin eiga að safna sönnunargögnum gegn Japönum sem síðan verða notuð til þess að höfða mál gegn þeim í Alþjóðadómstólnum í Haag. Umhverfisráðherra Ástrala, Malcolm Turnbull, sagði að þó svo stjórnarandstaðan áliti svæðið ástralskt væri það ekki viðurkennt á alþjóðlegum vettvangi og því gætu Japanar sent herskip með hvalveiðiskipum sínum þeim til verndar. Sérfræðingar á vettvangi alþjóðlegra laga minntu líka á að Suðurskautslandið væri afvopnunarsvæði og því gæti það haft afleiðingar á alþjóðavettvangi að senda þangað herskip, þó svo að það væri aðeins í eftirlitsskyni. Kosningar verða í Ástralíu í nóvember næstkomandi. Flokkur stjórnarandstæðinga, undir forystu Kevin Rudd, hefur átt góðu fylgi að fagna í skoðanakönnunum. Talið er að hann eigi góðan möguleika á því að velta stjórn íhaldssamra úr sessi en hún hefur setið í undanfarin tíu ár.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira