Elskar ennþá górilluna Óli Tynes skrifar 20. maí 2007 14:31 Bokito svipast um eftir einhverju að éta. MYND/AP
Fimmtíu og sjö ára gömul hollensk kona sem górilla beit í dýragarðinum í Rotterdam í gær, segir að hún elski ennþá górilluna Bokito. Konan segir í viðtali við hollenska dagblaðið Telegraaf að hún fari nær daglega í dýragarðinn ásamt eiginmanni sínum. Þau hafi tekið ástfóstri við Bokito og eigi meira að segja myndir af honum frá því hann var fjögurra mánaða gamall. Bokito er nú ellefu ára gamall og heljargórilla burðum. Það greip því um sig nokkur skelfing í gær þegar hann slapp út úr búri sínu. Bokito er geðgóður api, en mun sjálfum hafa verið brugðið við það uppnám sem varð þegar hann fór að rölta um meðal þeirra sem voru að skoða hann. Hann slæmdi höndunum í einhverja gesti en þegar hann kom að vinkonu sinni settist hann ofan á hana og byrjaði að bíta hana. Hann vann henni þó ekki alvarlegt tjón áður en hann stóð á fætur og rölti inn á næsta veitingastað þar sem hann settist að snæðingi. Þar var hann svæfður og fluttur aftur í búrið sitt. Konan segir að þau hjónin muni fara og heimsækja Bokito aftur, um leið og hún komist á fætur.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira