Kínverskur háskóli skyldar nýnema í þungunarpróf Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 18. maí 2007 15:56 Stefna kínverskra stjórnvalda hefur verið eitt barn á fjölskyldu. MYND/Getty Images
Skólastjórn tækniháskóla í vestur hluta Xinjiang héraðs í Kína segir þungunarpróf sem nemendur eru látnir taka sem hluta af inntökuprófi sýni samfélagslega ábyrgð. Tæplega 80 prósent nýnema heimavistarskólans eru stúlkur á aldrinum 17 til 18 ára. Prófið hefur verið framkvæmt í nokkur ár og þær sem reynast barnshafandi eru beðnar að hætta. Þetta er haft eftir nemendum skólans í Bejing News. Vitnað er í ónefndan stjórnarmann skólans sem sagði að um væri að ræða einkaskóla. Þungunarprófið væri hluti af almennu heilsufarsprófi. Hann sagði skólann framkvæma prófið sem skyldu til nemendanna og fjölskyldna þeirra. Kvenkyns nýnemunum er hópað saman á gang og þar sem þeim er gert að láta þvagpróf ganga til læknis. Ef óvenjulegar niðurstöður koma í ljós ber lækninum að tilkynna það tafarlaust til skólans. Sumar stúlknanna sem hafa reynst ófrískar hafa sjálfar boðist til að hætta, en aðrar eru beðnar um að fara. Eitthvað hefur verið um að stúlkur fái “lánað” þvag hjá bekkjarsystrum sínum til að forðast prófið. Aukin hagsæld í Kína hefur haft þau áhrif að losnað hefur um ægivald yfir persónulegum högum Kínverja. Fyrir einungis 20 árum þurfti leyfi yfirvalda fyrir giftingum og barnsburðum. Enn er þó forboðið að fæða barn utan hjónabands í Kína. Stefnu yfirvalda um einungis eitt barn á fjölskyldu er fylgt blint víða í fátækari samfélögum landsins. Mannréttindahópar segja einnig töluvert um þvingaðar fóstureyðingar á þeim svæðum.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira