Thomson selur eignir 12. maí 2007 08:00 Fréttastofa Reuters í Bandaríkjunum. Mynd/AFP
Kanadíska upplýsingafyrirtækið Thomson Corp. hefur ákveðið að selja eignir fyrir 7,75 milljarða bandaríkadali, rúma 498 milljarða íslenskra króna. Með sölunni styrkjast sjóðir félagsins, sem sagt er íhuga að gera yfirtökutilboð í bresku fréttastofuna Reuters. Það er bandaríski fjárfestingasjóðurinn Apax Partners og kanadíski lífeyrissjóðurinn Omers Capital Partners sem er kaupandi eignanna. Um er að ræða eitt af dótturfélögum Thomson, Nelson Canada, sem sérhæfir sig í gerð og framleiðslu á kennsluefni. Gert er ráð fyrir að yfirtökutilboð Thomson á Reuters geti hljóðað upp á allt að 17,5 milljarða bandaríkjadali, jafnvirði 1.125 milljarða íslenskra króna. Hluthöfum Reuters verður greitt með peningum og hlutum í Thomson. Gengi beggja félaga hækkaði í kauphöllum. Gengi bréfa í Thomson hækkaði um 3,6 prósent við fréttirnar og fór í 42,02 dali á hlut á markaði í Bandaríkjunum. Gengi bréfa í Reuters hækkaði að sama skapi um 1,91 prósent og fór í 613 pens á hlut í kauphöllinni í Lundúnum í Bretlandi.Fulltrúar beggja fyrirtækja segja að viðræður séu á byrjunarstigi og sé ekki hægt að slá því föstu að Thomson leggi fram yfirtökutilboð. Verði það gert er því spáð að kaupin gangi í gegn á þriðja fjórðungi ársins.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira