Viðskipti innlent

Dótturfélag Eimskips semur við Neslé

Höfuðstöðvar Innovate í Bretlandi.
Höfuðstöðvar Innovate í Bretlandi.

Innovate Logistics, dótturfélag Eimskips, hefur skrifað undir 10 ára samning við Nestlé UK Ltd,  stærsta matvæla- og drykkjarvöruframleiðanda í heimi, um rekstur á 75.000 bretta kæligeymslu í Bardon, Leicestershire í Bretlandi. Heildarvirði samningsins nemur milljörðum króna. 

Í tilkynningu frá félaginu segir að samningurinn feli í sér í að Innovate byggi vörugeymslu sérstaklega sniðna að þörfum Nestlé og hefur Innovate umsjón með verkinu sem og rekstri geymslunnar næstu 10 árin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×