Viðskipti innlent

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 2,4 prósent

Nýbyggingar á höfuðborgarsvæðinu.
Nýbyggingar á höfuðborgarsvæðinu.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,4 prósent í apríl frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði hún um 5,1 prósent og síðastliðna 6 mánuði um 2,8 prósent. Síðastliðna 12 mánuði hefur vísitalan hækkað um 5,8 prósent, samkvæmt nýjustu upplýsingum Fasteignamats ríkisins.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Fasteignamatið skiptir íbúðarhúsnæði í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði, að sögn Fasteignamatsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×