Viðskipti innlent

Velta á markaði sambærileg við síðasta ár

Glitnir.
Glitnir.

Undirliggjandi velta á innlendum hlutabréfamarkaði það sem af er árs er sambærileg og í fyrra. Veltan var lítið minni í janúar og mars en mun meiri í febrúar. Greiningardeild Glitnis segir ástæðuna fyrir aukningunni í febrúar tilfærslu eignarhluta í ár og að markaðurinn snéri við í fremur lítilli veltu eftir hraða hækkun um miðjan febrúar á síðasta ári.

Deildin segir í Morgunkorni sínu í dag að það sem af sér apíl sé nokkur veltuaukning í pípunum miðað við síðasta ár þrátt fyrir að leiðrétt sé fyrir stórum viðskiptum með eignarhluti í Glitni. Í heildina virðist því undirliggjandi velta á markaðnum vaxa nokkuð frá fyrra ári, að sögn greiningardeildar Glitnis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×