Viðskipti innlent

Landsbankinn sagður bjóða í Bridgewell

Landsbankinn er sagður vera á meðal þeirra sem hafa lagt fram yfirtökutilboð í breska verðbréfafyrirtækið Bridgewell Group. Á meðal annarra bjóðenda er hollenski fjárfestingabankinn Fortis, sem rekur starfsemi víða um Evrópu.

Breska blaðið Financial Times segir í dag að engar fjárhæðir hafi verið nefndar á nafn og séu stjórnendur Bridgewell að skoða bjóðendurna, sem séu nokkrir. Hafi Jim Renwick, forstjóri Bridgewell, og Darren Ellis, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, komið hingað til lands í gær til fundar með Landsbankamönnum.

Bridgewell greindi frá því við lok síðasta mánaðar að yfirtökutilboð hafi borist í rekstur fyrirtækisins frá nokkrum aðilum í kjölfar birtingu afkomutalna fyrir síðasta ár. Hagnaður fyrirtækisins dróst saman á milli ára og var afkoman undir væntingum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×