Biðin styttist í lækkun reikigjalda 12. apríl 2007 11:12
Iðnnefnd ESB hefur lagt til tvenns konar þak á reikigjöld fyrir notkun farsíma erlendis. Eitt gjald verður fyrir hringingu úr farsímum og annað fyrir móttöku símtala erlendis. Nefndin gengur í tillögum sínum nokkuð lengra en framkvæmdastjórn ESB lagði til í fyrra en hún horfir til þess að lækka reikigjöldin um allt að 70 prósent. Kosið verður um málið á Evrópuþinginu í næsta mánuði. Í tillögum framkvæmdastjórnarinnar sem lagðar voru fram um mitt síðasta ár og eiga að stuðla að lækkun á reikigjöldum fyrir notkun farsíma erlendis var lagt upp með að lækka gjöldin um allt að 70 prósent. Lagt var til að gjald fyrir hringingar úr farsímum færi ekki yfir 50 evrusent á mínútu en að gjald fyrir móttöku símhringinga færi ekki yfir 25 evrusent. Í tillögum iðnnefndar ESB, sem kosið verður um í dag, er þak sett við 40 evrusent á mínútu fyrir hringingu úr farsímum en 15 evrusent fyrir móttöku símhringinga. Þegar framkvæmdastjórnin lagði tillögurnar fram í fyrra kom fram að farsímafélög hafi fram til þessa hagnast verulega á reikigjöldum vegna notkun á farsímum erlendis. Gjöldin þykja hafa verið mjög há og komið það þeim sérlega illa, sem þurfi oft að ferðast landa á milli vegna sinnar. Vonast er til að áætlun Evrópusambandsins geti tekið gildi í sumar en fyrst þarf tillagan að hljóta samþykki Evrópuþingsins og stjórnvalda í aðildarríkjum Evrópusambandsins.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira