Viðskipti innlent

Umbreytingar framundan í lyfjaheiminum

Björgólfur Thor Björgólfsson.
Björgólfur Thor Björgólfsson.

Stjórn Actavis var sátt við að stjórnendur félagsins ákváðu að greiða ekki yfirverð fyrir bréf í króatíska samheitalyfjafyrirtækið Pliva þegar fyrirtækið barðist um þann bita við bandaríska lyfjafyrirtækið Barr. Þetta sagði Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður og einn stærsti hluthafi Actavis, á aðalfundi félagsins í dag. Björgólfur sagði spennandi tíma framundan og líkur á umbreytingum í lyfjaheiminum á árinu.

Björgólfur fór meðal annars yfir síðasta ár í sögu Actavis og sagðist hafa orðið glaður þegar félagið hlaut Íslensku þekkingarverðlaunin, í þriðja sinn á fjórum árum í febrúar fyrir yfirburða þekkingu á sviði yfirtaka, sameininga og samþættinga.

„Þar fékkst staðfest, sem ég reyndar vissi fyrir, að fyrirtækinu hefur tekist að þróa skilvirkar aðferðir við yfirtökur og ytri vöxt sem meðal annars hafa leitt til lægra framleiðsluverðs, aukinnar hagkvæmni við sölu og dreifingu og fjölbreyttara lyfjaúrvals. Ánægjulegast er þó að jafnhliða markvissum ytri vexti hefur innri vöxtur verið stöðugur og ber þar helst að þakka traustum og öruggum rekstri á öllum helstu starfseiningum fyrirtækisins," sagði Björgólfur.

Varðandi yfirtökukapphlaupið við Barr um Pliva sagði Björgólfur að hefði orðið af kaupum Actavis á félaginu þá hefði verðið sem hefði þurft að greiða verið hærra en nokkru sinni var hægt að réttlæta. „Þar sýndu stjórnendur félagsins dómgreind og mikinn þroska sem aðeins eykur tiltrú á félaginu," sagði Björgólfur.

Actavis er eitt nokkurra fyrirtækja sem hug hafa á kaupum á samheitalyfjahluta þýska lyfjaframleiðandans Merck. Björgólfur sagði spennandi tíma framundan og muni árið að líkindum verða ár umbreytinga í lyfjaheiminum en kom ekki að öðru leyti inn á viðskiptin í ávarpi sínu. „Ég hef fulla trú á að félagið nýti þau tækifæri sem gefast og að okkur muni miða vel áfram að því marki okkar að Actavis verði í hópi þriggja stærstu samheitalyfjafyrirtækja í heiminum," sagði hann.

Ræðan er í heild sinni hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×