Danska lögreglan kvíðir innrás í Kristjaníu Óli Tynes skrifar 3. apríl 2007 11:00 Kristjanía tekur upp talsvert pláss í höfuðborginni og þar er verðmætt byggingarland.
Landssamband danskra lögreglumanna kvíðir því nokkuð að þurfa að gera innrás í frístaðinn Kristjaníu. Allt stefnir í að það verði gert á næstunni. Menn hugsa sem svo að ef urðu slík læti þegar eitt hús var rýmt á Nörrebro, hvað gerist þá þegar þarf að rýma 850 manna íbúðahverfi. Ólætin sem urðu þegar Ungdómshúsið var jafnað við jörðu kostuðu danska skattborgara um einn milljarð króna.Svo margir lögreglumenn unnu sér þá inn þriggja til fjögurra vikna aukafrí, að landssambandið hefur efasemdir um að hægt verði að finna mannskap í aðra stóraðgerð. Yfirvöld hafa hótað að senda jarðýtur inn í hverfið og jafna það við jörðu, ef ekki semst. Húsin þar eru mörg hver í niðurníðslu.Yfirmenn lögreglunnar eru þó ekki í neinum vafa. "Ef við fáum fyrirmæli um að fara inn í Kristjaníu þá gerum við það," segir Fleming Steen Munch, talsmaður lögreglunnar. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd nær Kristjanía yfir stórt svæði í hjarta Kaupmannahafnar og þolinmæði stjórnvalda gagnvart fríríkinu er á þrotum.Þau vilja að Kristjanía verði venjulegt íbúðahverfi í höfuðborginni og ætla að byggja þar 400 nýjar íbúðir. Samkvæmt tillögum þeirra mega núverandi íbúar búa þar áfram, en þeir verða þá að borga eðlilega húsaleigu, þó undir markaðsverði. Þessu hafa íbúar Kristjaníu hafnað og því stefnir nú í innrás lögreglu.
Erlent Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira