Viðskipti innlent

Fitch lækkar lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs

Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings lækkaði í dag lánshæfiseinkunni ríkissjóðs í erlendri og innlendri mynt úr AA- og AAA í A+ og AA+. Horfur eru stöðugar fyrir báðar einkunnir. Um leið var lánshæfiseinkunnin fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt lækkuð úr F1+ í F1 auk þess sem landseinkunnin (e. country ceiling) lækkar úr AA í AA-.

Paul Rawkings, sérfræðingur Fitch Ratings í Lundúnum, segir lækkunina taka mið af nýjustu gögnum um greiðslujöfnuð og hreina erlenda stöðu þjóðarbúsins sem bendi til þess að staða Íslands gagnvart útlöndum hafi versnað verulega. Auki það áhyggjur um sjálfbærni erlendu skuldastöðunnar.

Þá segir ennfremur að stóraukin hrein fjármagnsgjöld til útlanda - aðallega í formi erlendra vaxtagreiðslna - hafi átt sinn þátt í meiri viðskipahalla en áður hefur mælst. Hann nam 27 prósentum af landsframleiðslu í fyrra samanborið við 16,3 prósent árið á undan. Á sama tíma jukust hreinar erlendar skuldir í rúm 200 prósent af landsframleiðslu og 429 prósent af útflutningstekjum. Til samanburðar hafði matsfyrirtækið spáð að þessi hlutföll yrðu 161 prósent og 323 prósent.

Rawkings segir svo há hlutföll endurspegla mjög skuldsett hagkerfi sem sé illa búið undir aukna áhættufælni á alþjóðamörkuðum og/eða hærra alþjóðlegt vaxtastig.

Fitch viðurkennir hins vegar að Ísland búi yfir styrk á ákveðnum sviðum sem bersýnilega skilji það frá öðrum ríkjum með lánshæfiseinkunina A, svo sem þjóðartekjur á mann sem nema 52.000 Bandaríkjadölum, hágæða stjórnkerfi og gegnsætt stofnanaumhverfi. Þessir þættir munu áfram styðja við lánshæfismat ríkisins, að því er matsfyrirtækið segir en bendir á að það sé engu að síður þeirrar skoðunar að þessir eiginleikar vegi ekki upp efnahagslegt ójafnvægi og áhrif þess á lánstraust.

Gengi hlutabréfa í Kauphöll Íslands lækkaði hratt í kjölfar birtingar matsins. Mest hefur gengi bréfa í Landsbankanum lækkaði í dag, eða um 2,21 prósent. Næst eftir fylgir gengi bréfa í Kaupþingi, sem hefur lækkað um 1,68 prósent það sem af er dags.

Lánshæfismat Fitch






Fleiri fréttir

Sjá meira


×