Akureyrarbær boðar kennara á sérfund 5. mars 2007 19:45
Ríkissáttasemjari hefur ákveðið að funda með kennurum vegna kjaradeilunnar. Akureyrarbær hefur einnig boðað sína kennara á sérfund og er fyrsta sveitarfélagið sem tekur það það skref. Deilan milli grunnskólakennara og viðsemjenda í launanefnd sveitarfélaga er í hörðum hnút og hefur Ríkissáttasemjari nú ákveðið að funda með kennurum vegna þeirra hugmynda sem komið hafa upp um gerðardóm. Þar yrði sérstaklega rætt um svokallað endurskoðunarákvæði og verður fundurinn væntanlega á morgun. Ef gerðardómur mun úrskurða í deilunni fellur forræði launanefndarinnar og samningsumboð niður. Akureyrarbær hefur ákveðið að stíga það skref fyrst sveitarfélaga á landinu að boða til sérstaks fundar með sínum kennurum nú í vikunni. Formaður bæjarráðs situr einnig í launanefndinni. Hann segir að þótt þetta skref verði stigið þýði það ekki að bærinn hyggist kljúfa sig út og reyna sérsamninga. Daníel Freyr Jónsson formaður Bandalags kennara á Norðurlandi eystra fagnar frumkvæði Akureyrarbæjar að falast eftir þessum fundi. Hann segir að einu gildi fyrir kennara hvort samið sé við einstök sveitarfélög eða launanefndina, niðurstaðan sé aðalmálið.
Fréttir Innlent Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Innlent Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Innlent Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Innlent Brenna líkin á nóttunni Innlent Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Erlent Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Innlent Musk sagður hafa átt fund með sendiherra Íran Erlent Fleiri fréttir Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Bein útsending: Upplýsingafundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Málaferlin auki gildi verksins og hann sé hvergi af baki dottinn Bein útsending: Utanríkisstefna á umbrotatímum Refsing milduð í stóra skútumálinu Sósíalistar færu ekki í stjórn sem ætlaði að selja Íslandsbanka Hugmyndir Ingu séu aðför að kjörum alls vinnandi fólks Hjúkrunarfræðingar hafa skrifað undir samning Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu: Skýr mörk á milli hægri og vinstri Lýsa eftir konu með heilabilun Samherji lagði listamanninn Odee Myndband sýnir umfang skriðanna í Eyrarhlíð Fimm sveitarstjórnarfulltrúar í Strandabyggð beðist lausnar Sósíalistar mælast inni og Vinstri græn í lífshættu Sjá meira