Innri endurskoðandi og fjármálastjóri spurðir um bókhald Baugs 1. mars 2007 17:59
Vitnaleiðslum í Baugsmálinu í dag lauk um fjögurleytið en þrjú vitni komu fyrir dóminn í dag. Það voru þau Auðbjörg Friðriksdóttir, fyrrverandi innri endurskoðandi fyrirtækisins, Jóhanna Waagfjörð, fyrrverandi fjármálastjóri Baugs, og Árni Oddur Þórðarson, stjórnarformaður Marels, og einn af eigendum Gildingar. Mestur tíminn fór í að spyrja Auðbjörgu, sem var innri endurskoðandi félagsins á árunum 2000 til 2002, en fram kom í máli hennar að eftir húsleit lögreglu í höfuðstöðvum Baugs í ágústlok 2002 hefði hún aflað gagna í málinu fyrir verjendur Baugsmanna og fram til dagsins í dag. Þar kom einnig fram að hún hefði gert samantekt á þeim málum sem lögregla hefði óskað eftir.Auðbjörg var spurð um marga af 18 ákæruliðum, þar á meðal 11. og 12. ákærulið sem snúa að meintum tilhæfulausum bókhaldsfræslum sem Jón Ásgeir Jóhannesson og Tryggvi Jónsson eiga að hafa látið gera, aðra upp á 25 milljónir króna en hina upp á rúmar þrettán milljónir Baugi til tekna. Sagðist Auðbjörg ekki hafa séð um að færa bækur fyrirtækisins en taldi bókhald Baugs sýna rétta stöðu. Síðarnefndu færslunni fylgdu engin skjöl utan tekjufærslunnar sjálfrar en Auðbjörg sagði að formgildi skjala hefði ekki alltaf verið gott. Þetta hefði ekki verið eina dæmið og unnið hefði verið að bótum á þessu.Auðbjörg var einnig spurð út í meintan tilhæfulausan kreditreikning frá Nordica upp á tæpar 62 milljónir króna frá árinu 2001 en hans er getið í 15. ákærulið. Hefur því verið haldið fram að um hafi verið að ræða reikning meðal annars vegna rýrnunar á vörum frá Nordica. Sagði Auðbjörg að fræðileg greining sín hefði leitt í ljós að miklar líkur hefðu verið á því að kreditreikningurinn ætti rétt á sér.Auðbjörg var líka spurð af verjanda Jóns Ásgeirs hvort Jón hefði hlutast til um hvernig bókhald Baugs hefði verið fært og svaraði hún því neitandi.Undir þau orð tók Jóhanna Waagfjörð, sem yfirheyrð var á eftir Auðbjörgu, en Jóhanna var fjármálastjóri Baugs frá byrjun september 2001 til ársins 2003. Sagðist hún einnig hafa átt samtöl við verjendur sakborninga á síðustu misserum.Hún var meðal annars spurð út í tölvupósta þar sem hún var að spyrjast fyrir um viðskiptamannareikninga Gaums, Fjárfars og Kristínar Jóhannesdóttur hjá Baugi en ákært er fyrir ólögmæt lán til þessara aðila frá Baugi. Sagðist hún kannast við tölvupóstsamskipti við Tryggva og Jón Ásgeir vegna málsins þar sem þeir hefðu sagst ætla að ganga frá málunum og hún hefði gert ráð fyrir að svo yrði.Þá var hún spurð úti í mánaðarlega reikninga Nordica, félags Jóns Geralds Sullenberger, til Baugs á árunum 1999-2002 sem samkvæmt 18. ákærulið voru vegna eignarhlutdeildar Gaums í bátnum Thee Viking. Sagði Jóhanna hins vegar að reikningarnir hefðu verið vegna þjónustu Nordica við Baug en ekki rekstar bátsins.Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, spurði bæði Auðbjörgu og Jóhönnu um framgöngu lögreglu við skýrslutöku af þeim í málinu. Sögðu þær Arnar Jensson, sem þá var aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra, hafa gengið hart fram í yfirheyrslunum og sagði Auðbjörg að hann hefði snúið út úr fyrir sér og ekki hlustað á skýringar sínar á málum. Síðastur í vitnastúku var Árni Oddur Þórðarson, einn eigenda fjárfestingarfélagsins Gildingar, sem keypti hlut í Baugi síðla árs 2000. Vísað var til þess að Gaumur hefði skráð sig fyrir 340 milljónum í hlutafjárútboðinu og 290 milljónir hefðu verið greiddar fljótt. Spurði saksóknari hvort Gilding hefði greitt það.Sagði Árni erfitt að tala um einstakar færslur en kannaðist við að hafa átt viðræður við forsvarsmenn Baugs um aukna aðkomu Gildingar að Baugi. Á endanum hafi Gilding keypt níu prósenta hlut í Baugi. Fram kom í spurningum Gests Jónssonar til Árna að tæknilega hefði verið um það að ræða að áskrift Gaums á hlutabréfum í Baugi hefði verið framseld til Gildingar.Vitnaleiðslur halda áfram á morgun en þá koma fjögur vitni fyrir réttinn, þar á meðal Stefán Hilmar Hilmarsson, endurskoðandi Baugs, sem ákærður var í upphaflega Baugsmálinu en var sýknaður af öllum ákæruatriðum.
Fréttir Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira