Glitnir fram úr væntingum 1. ágúst 2007 03:15
Glitnir skilaði 9,5 milljörðum króna í hús á öðrum ársfjórðungi sem var rúmum 1,1 milljarði króna meira en meðaltalsspá markaðsaðila hljóðaði upp á. Þetta er næstbesti ársfjórðungur bankans frá upphafi en sá besti kom á öðrum ársfjórðungi í fyrra þegar félagið hagnaðist um ellefu milljarða króna. Nam arðsemi eiginfjár 24,2 prósentum á síðasta fjórðungi. Á fyrri árshelmingi var hagnaður bankans 16,5 milljarðar króna og myndaðist 45 prósent af hagnaði fyrir skatta utan Íslands. Hreinar rekstrartekjur hafa aldrei verið hærri en þær námu alls 23,2 milljörðum króna á fjórðungnum. Sem fyrr liggur tekjuvöxtur bankans í gegnum þóknunartekjur sem námu 8,9 milljörðum króna og jukust um 22 prósent frá fyrsta ársfjórðungi. Hreinar vaxtatekjur, sem hækkuðu um sama hlutfall, voru 9,7 milljarðar króna. Hreinar fjármunatekjur og aðrar rekstrartekjur voru rúmir 4,6 milljarðar. Rekstrarkostnaður vex þónokkuð. Hann var 12,1 milljarður, óx um fjörutíu prósent frá fyrsta ársfjórðungi og hefur tæplega tvöfaldast á milli ára. Aukinn launakostnaður skýrir þennan vöxt en starfsmönnum bankans hefur fjölgað um 500 frá áramótum. Heildareignir bankans stóðu í 2.335 milljörðum króna í lok júní og hafa vaxið um fjögur prósent á árinu. Eigið fé var 151 milljarður. Eiginfjárhlutfall (CAD) er hátt eða um 13,2 prósent en eiginfjárþáttur A um 9,4 prósent.
Viðskipti Mest lesið Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Viðskipti innlent Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Viðskipti innlent Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Samstarf Fleiri fréttir Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Sjá meira