Viðskipti innlent

Lækkanir til marks um alþjóðleg áhrif

Jón Skaftason skrifar
Lækkanir undanfarinnar viku skýrast einkum af verðrýrnun erlendra fjárfestinga og gengistapi, og þykja til marks um aukna alþjóðavæðingu íslensks viðskiptalífs.
Lækkanir undanfarinnar viku skýrast einkum af verðrýrnun erlendra fjárfestinga og gengistapi, og þykja til marks um aukna alþjóðavæðingu íslensks viðskiptalífs. Fréttablaðið/Stefán

Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hefur lækkað um tæplega 4,5 prósent undanfarna viku og er lækkunin í samræmi við þær lækkanir sem orðið hafa á erlendum mörkuðum.

Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningar Glitnis, segir íslenskan hlutabréfamarkað sífellt verða alþjóðlegri. Stór hluti íslenskra félaga sé bæði með fjárfestingar og starfsemi erlendis, sem verði fyrir beinum áhrifum af gengi á erlendum mörkuðum, „Mörg félögin hér á landi eru með fjárfestingar og starfsemi erlendis. Þá eru margir innlendir fjárfestar sem eiga eignir í útlöndum, auk þess sem stórir erlendir fjárfestar eru orðnir umsvifamiklir á íslenskum fjármálamarkaði. Allt þetta er til marks um hversu alþjóðlegt viðskiptalífið er orðið.“

Breska FTSE 100-vísitalan hefur lækkað um 4,5 prósent undanfarna viku, hin franska CAC40 um 4,4 prósent og þýska DAXið litlu meira. Hin danska C20-vísitala hefur lækkað um tæplega 3,4 prósent, norska OBX-vísitalan um rúmlega 4,4 prósent og OMXS30 í Svíþjóð um tæplega 3,7 prósent. Dow Jones-vísitalan í Bandaríkjunum lækkaði um 4,2 prósent síðastliðna viku og hefur ekki lækkað meira á einni viku síðan árið 2003. NASDAQ-vísitalan lækkaði um 1,34 prósent.

Ingólfur telur hin alþjóðlegu áhrif einkum birtast á tvennan hátt; fjárfestingar erlendis rýrni í verði þegar skarpar lækkanir verða á mörkuðum líkt og undanfarna daga, auk þess sem veiking krónunnar valdi fjárfestum gengistapi. Einnig sé athyglisvert að hér heima hafi ekkert sérstakt gerst sem gæfi tilefni til svo skarpra lækkana, til að mynda hafi uppgjörshrinan sem nú stendur yfir verið tiltölulega góð, „Markaðurinn hér heima hefur þó hækkað talsvert undanfarið. Menn fá alltaf smávægilegan hroll þegar svo er og búast við leiðréttingu. Sú kann að vera skýringin að einhverju leyti. Meginorsökin er hins vegar þessar breytingar sem orðið hafa erlendis og knýja innlendan hlutabréfamarkað niður.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×