Vonlaus endurkoma 10. júlí 2007 00:30 Uncle Dysfunktional Happy Mondays H Á Uncle Dysfunktional er Manchester-sveitin Happy Mondays langt frá sínu besta. Vond lög og stirðbusalegar útsetningar.
Þessi endurkomuplata Manchester-sveitarinnar Happy Mondays er hennar fyrsta plata með nýju efni síðan Yes Please kom út fyrir 15 árum. Sveitin hefur verið að byrja og hætta af og til síðan hún hætti fyrst árið 1993. Í dag eru söngvarinn og textasmiðurinn Shaun Ryder, dansarinn Bez og trommuleikarinn Gaz Whelan þeir einu sem voru í hljómsveitinni þegar hún var upp á sitt besta. Bassaleikarinn Paul Ryder og hljómborðsleikarinn Paul Davis sem margir vilja meina að hafi verið mennirnir á bak við tónlist Happy Mondays á sínum tíma eru báðir víðs fjarri. Shaun, sem er þekktur sem eitt vonlausasta eiturlyfjafórnarlamb rokksögunnar, er samkvæmt fréttatilkynningum nú endurhæfður og edrú og til í slaginn. Þegar Happy Mondays voru upp á sitt besta á plötunum Bummed og Pills & Thrills & Bellyaches þá spiluðu þeir skemmtilega grúví og skítuga blöndu af rokki og danstónlist. Á nýju plötunni reyna þeir að endurtaka fyrri afrek, en með litlum árangri. Það vantar kraftinn, flæðið og grúvið í þessi nýju lög og klunnalegur ljótleikinn (sem var alltaf hluti af sjarma sveitarinnar) er einn eftir. Það eru engin Kinky Afro, Step On eða Wrote For Luck hér. Það má að vísu enn brosa að textunum á stöku stað, en það er langt frá því að vera nóg. Ein versta plata sem ég hef heyrt lengi.
Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira