Melodía komin út 6. júlí 2007 02:00 Kápa hinnar veglegu útgáfu með lögum úr Melodíu skreytt baldíreðum saumi á púða frá fyrri hluta 19. aldar.
Í Árnasafni í Kaupmannahöfn er varðveitt sautjándu aldar handrit sem lætur lítið yfir sér en geymir fjársjóð sem tengir íslenskt þjóðlíf á þeim tímum og jafnvel fyrr við menningarheim Evrópu. Það er úr fórum Rasmusar Rask málfræðings en ýmsum getum hefur verið leitt að því hver skrifaði handritið upp: það geymir nótur að 223 lögum við íslensk ljóð, sum frumsamin, en önnur uppsuðu úr erlendum textum: söngva við erlend þjóðkvæði, tvísöngva, sálma, drykkjuvísur og margt fleira. Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarmaður, tónlistarfræðingur og pistlahöfundur hér í Fréttablaðinu til skamms tíma, hefur eytt drjúgum tíma í að rannsaka handritið og grafast fyrir um hvaðan þessi tónlist sem það geymir sé upprunnin. Fyrir skömmu greindi Árni Heimir frá því í erindi um Melódíu að handritið bæri öll merki þess að vera ætlað skrifaranum sjálfum, sem hefði líklega langað til að eiga öll uppáhaldslögin sín á sama stað. „Það hljómar kannski einkennilega, en þetta gamla íslenska handrit er iPod síns tíma. Þarna safnaði einhver óþekktur einstaklingur öllum uppáhaldslögunum sínum í eina bók sem hann gat farið með hvert sem var og sungið fyrir sjálfan sig og aðra. Kannski getum við sagt að lögin þarna séu „topp 200“ lög 17. aldarinnar á Íslandi, og það gerir handritið auðvitað einstakt í sinni röð. Þetta voru lögin sem nafntoguðustu menn og konur þessa tíma hafa eflaust raulað fyrir munni sér, t.d. Hallgrímur Pétursson, Brynjólfur Sveinsson biskup og Ragnheiður dóttir hans,“ segir Árni Heimir. Nú hefur Árni bætt um betur: Sönghópurinn Carmina hefur nú hljóðritað 33 þeirra laga sem er að finna í Melodiu og komið á disk. Þar með eru tónsmíðarnar úr handritinu komnar hringinn: þær lifnuðu við fyrir mörgum öldum í hugum Íslendinga og komast nú aftur til sinna heimkynna, í íslensk eyru. Diskurinn er afrakstur rannsókna sem Árni Heimir og Guðrún Laufey Guðmundsdóttir sagnfræðingur hafa unnið að í nokkur ár og hlutu meðal annars styrk úr Rannsóknasjóði. Að sögn Árna Heimis lá mesta vinnan í að grafast fyrir um hvaðan lögin væru upphaflega komin. „Lengi vel var talið að flest ef ekki öll lögin í Melódíu væru íslensk þjóðlög, en nú er komið í ljós að málið er ekki alveg svo einfalt. Mörg þeirra eru komin frá meginlandi Evrópu og nutu mikilla vinsælda á sínum tíma. Okkur hefur tekist að finna lögin í handritum og prentuðum bókum meðal annars frá Þýskalandi, Austurríki, Sviss, Frakklandi og Spáni, sem þýðir að við getum notað upprunalegu útsetningarnar sem stundum fylgdu ekki lögunum til Íslands. Þetta gefur diskinum skemmtilegan blæ og greinilegt að miklu meira var um alþjóðlega tónlistarstrauma á Íslandi á 16. og 17. öld en nokkurn hafði órað fyrir.“ Það er Smekkleysa sem gefur diskinn út og honum fylgir ítarlegur bæklingur þar sem saga handritsins og laganna er rakin. Auk þess fylgja söngtextar á íslensku og í enskri þýðingu Bernards Scudder. Carmina er annars nýkomin úr tónleikaferð til Svíþjóðar þar sem hópurinn flutti efnisskrá úr Melódíu á Stockholm Early Music Festival, sem er ein virtasta endurreisnartónlistarhátíð Norðurlanda. Tónleikar Carminu vöktu mikla athygli og var mál manna að söngur Íslendinganna hafi slegið rækilega í gegn, en meðal annarra gesta hátíðarinnar voru spænski gömbuleikarinn Jordi Savall og sveit hans, Hesperion XXI. „Það hefur mikið verið spurst fyrir um þetta verkefni frá alþjóðlegum tónlistarhátíðum og við erum strax komin með fleiri boð sem við erum að vinna úr. Það er gífurlegur áhugi erlendis á því að gægjast inn í gamla íslenska tónlistarheiminn og mjög spennandi að fá að taka þátt í þessari miklu endurreisn á okkar gamla söngarfi.“ Útgáfa disksins er menningarsögulegur viðburður og í flutningi Carmina vakna lögin og ljóðin á ný og bæta stórri vídd inn í íslenska menningarsögu.
Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fleiri fréttir HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Kanye treður upp í Rússlandi Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Heiður að endurvekja falda perlu Palla Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Sjá meira