Lífið er flóknara núna 4. maí 2007 09:00 Hreinskilinn við sjálfan sig og lífið „Stundum langar mann að borða eitthvað flókið en stundum langar mann bara í brauð með smjöri, skilurðu?“ Goran Bregovic leikur eitthvað fyrir alla á Listahátíð.
Margir bíða spenntir eftir komu stórsveitar Gorans Bregovic til Íslands en sá annálaði tónsmiður og sprelligosi mun leika á Listahátíð í samvinnu við heimstónlistarhátíðina Vorblót. Bregovic þeytist nú um heiminn en blaðamaður náði í skottið á honum í hótelsíma í Birmingham. Hann segist elska ferðalögin og tekur sérstaklega fram að honum leiðist aldrei. „Nú er ég að spila fimm mismunandi efnisskrár í mismunandi borgum,“ segir hann og bætir við að hlustendur hér fái að heyra brot af því allra besta. Erfitt er að skilgreina tónlist Bregovic en henni hefur verið líkt við blöndu af blásaratónlist sígauna, búlg-örskum fjöltónum og vestrænu rokki og rafmagnsgíturum, auk þess sem strengjasveit og dimmraddaður fjörutíu manna karlakór kemur einnig við sögu á tónleikunum í Laugardalshöll í maí.Konsertkokkteill„Ég kem með stóru hljómsveitina mína og það gefur mér möguleika á að spila hvað sem ég vil,“ segir Bregovic og nefnir að hlustendur fái að heyra lög af nýjustu sólóplötunni hans „Tales and Songs from Weddings and Funerals“, sem mun líklega koma blóðinu af stað, kunnugleg stef úr kvikmyndum en hann hefur til að mynda samið músík fyrir myndir Emirs Kusturica og framsæknari tóna úr stærri hljómsveitarverkum hans.Hann útskýrir að tónlistin sín hafi eðlilega tekið talsverðum breytingum á svo löngum ferli. „Þegar ég var yngri var ég rokkstjarna í kommúnískum heimshluta en ég er ekki á þeirri bylgjulengd lengur. Ég reyni að skrifa frá hjartanu.“ Hann líkir sköpun sinni við matarlyst. „Stundum langar mann til að borða eitthvað flókið en stundum langar mann bara í brauð með smjöri, skilurðu? Stundum langar mig að semja einfalda tónlist sem hægt er að dansa við en stundum eitthvað stærra. Nú er ég fimmtugur og ef ég vil vera hreinskilinn við sjálfan mig og lífið, sem er aðeins flóknara núna, þá sem ég aðeins margbrotnari músík.“Vandflokkaður listamaðurBregovic brosir að því að aðdáendur hans séu varaðir við því á heimasíðunni að á sumum tónleikum sé hann ekki bara að spila kunnuglega slagara. „Það voru einhverjir að kvarta á netinu yfir því að ég spilaði ekki bara gömlu lögin. Það er bara eðlilegt. Þegar þú ferð að sjá La Traviata áttu ekki von á einhverjum aríum úr Aidu.“Hann segir það sé meiri vandi fyrir útgáfufyrirtækið sitt að flokka músíkina heldur en hlustendurna. „Í sumum löndum er ég stimplaður sem klassískur listamaður, í öðrum er ég poppari eða heimstónlistarmaður. Svo kemur þessi MTV-væðing og sjónvarpið inn í þetta því þar mótast ákveðin skoðun eða skilgreining. Ég seldi meira en fimm milljónir platna um allan heim á síðustu árum en ég er samt aldrei í sjónvarpinu. Fólk uppgötvar tónlistina sjálft, jafnvel skrýtnari tónskáld en mig,“ segir hann hlæjandi.Ágeng og melódískBregovic samdi tónlist fyrir fjölmargar kvikmyndir á árum áður en gerir nú minna af slíku. „Ég er fæddur í Sarajevo en var sem betur fer ekki þar þegar stríðið geisaði, þá bjó ég í París. Ég missti allt í stríðinu en var svo heppinn að fá að semja fyrir kvikmyndirnar, fyrir myndir sem ekki þurftu alvöru kvikmyndatónlist,“ segir hann glettinn.„Ég álít mig ekki gott tónskáld fyrir kvikmyndir, tónlistin mín er dálítið of ágeng og melódísk fyrir kvikmyndirnar.“ Það bransafólk hefur samt enn eyra fyrir músík Bregovic og hljóma lög hans til dæmis í stórmyndinni um spéfuglinn Borat.Þótt Bregovic sé fyrir löngu orðinn alþjóðleg stjarna heldur hann góðum tengslum við rætur sínar. „Ég vinn í Belgrad, ég get ekki unnið neins staðar annars staðar – ég er staðbundið tónskáld,“ áréttar hann. „Það er samt gott að sjá hversu forvitinn heimurinn er og tilbúinn að uppgötva nýja tónlist.“ Heimstónlistarhátíðin Vorblót stendur frá 17-19. maí og má nálgast upplýsingar um dagskrána á síðunni www.vorblot.is.
Mest lesið Mikil hvatning ef fólk hlær að fötunum Tíska og hönnun Oddvitaáskorunin: Á í haltu mér - slepptu mér sambandi með morgunmat Lífið Hvað veistu um… pasta? Lífið Almar í kassanum ætlar að sækja um hjá Fox-sjónvarpsstöðinni Lífið Sanna hét áður Díana Lífið Læknuð af þrálátum hita og margra mánaða orkuleysi eftir jógaferð Lífið Blómstrar á Ítalíu og venst skömmum innfæddra Lífið Ellefu ára þegar fyrrverandi maður Mariuh Carey vildi gera hana að stjörnu Lífið „Maður hefur verið í feluleik að lifa tvöföldu lífi“ Lífið Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Stuðpinnar skáluðu í innsetningunni Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana DJ Krush á Extreme Chill Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Ásgeir heldur stórtónleika í Hörpu í ágúst Úlfarnir rifu næstum þakið af Austurbæ Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Námið ekki eins krefjandi og á Tene Samdi lagið meðan hún gekk í gegnum erfiða tíma Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Forrest Gump rokksins allur Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Hlustun á Bó snaraukist Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum „GusGus gera sexý lög og Birnir er einfaldlega sexý beast“ „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Laufey Lín sló í gegn á Coachella Myndaveisla: Skagarokk haldið í fyrsta skipti síðan 1994 Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Sautján þúsund miðar seldir á Kaleo Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu Barnsleg gleði, kynþokki og óhugnaður Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Sjá meira