Stillur á þorra og gylltur sjór 3. maí 2007 08:30 Útskriftartónleikar Maríu Huldar Markan Sigfúsdóttur og Páls Ragnars Pálssonar verða í Fríkirkjunni í kvöld.
María Huld Markan Sigfúsdóttir og Páll Ragnar Pálsson hafa verið virk í tónlistarlífi hérlendis um árabil en nú fá hlustendur að kynnast verkum þeirra í nýju samhengi. Á tónleikum í Fríkirkjunni í kvöld verða flutt útskriftarverkefni þeirra frá tónsmíðadeild Listaháskóla Íslands. María hefur starfað með kvartettinum amiinu og leikið með Sigur Rós en Páll Ragnar er vel kunnur af spilamennsku sinni með hljómsveitunum Maus og Fræ. Páll Ragnar semur verk fyrir flautu, klarínett, trompet, horn, túbu, píanó, selló og kontrabassa sem heitir því líflega nafni „Bleikur himinn, fjólublátt fjall, gylltur sjór“. Hughrif verksins eru sótt beint í hans nánasta umhverfi en hann kveðst ekki vilja láta of mikið með innblásturinn til að lita ekki viðtökurnar. Hann frábiður sér einnig allan flokkadrátt og stimplun. „Ef það þarf endilega að troða manni ofan í einhver hólf vildi ég gjarnan vera í kassanum þar sem tónskáldin eru sem skrifa skemmtilega tónlist,“ grínar hann. Hann viðurkennir síðar að bassaleikarinn sinn hafi líkt sér við neo-impressjónista. Páll Ragnar hyggur á frekara tónsmíðanám í framtíðinni og ku vera kominn með annan fótinn til Eistlands. María Huld rekur aðdraganda verks síns, „Þorra“, til veru sinnar á Bretlandi þar sem hún dvaldist í skiptinámi í tónsmíðum. „Ég var þar í janúar og þá var allt frekar grátt og þumbaralegt. Þegar mér gafst tækifæri til að semja verk fyrir kammerhóp sem kom til skólans langaði mig að gera verk sem myndi minna á ískalda birtu norðursins, þorrann hérna heima.“ Hún útskýrir að ísköld birta og ljúfsár melankólía gangi í gegnum verkið. Það er skrifað fyrir strengjakavartett, marimbu og sög en síðastnefnda hljóðfærið er til að mynda notað til að undirstrika stálkaldan veturinn. Bæði segjast þau eiga sér ýmis draumaverkefni í tónsmíðunum sem gaman væri að fást við í framtíðinni. „Nú er meginmarkmið mitt bara að klára skólann og fara í smá sumarfrí,“ segir María Huld en hún er nýkomin úr afar vellukkuðu tónleikaferðalagi hljómsveitarinnar Amiinu um Bandaríkin þar sem hljómsveitin kynnti sína fyrstu beiðskífu, Kurr, sem er væntanleg í júní. Fékk hljómsveitin dúndrandi viðtökur og dóma í þarlendum blöðum og er stefnan síðan tekin á Evrópu nú í maí en eftir að Kurr kemur út mun hljómsveitin síðan „kemba veröldina“ og kynna hana frekar. „Draumaverkefni framtíðarinnar er að semja stóran og mikinn strengjakvartett,“ segir María Huld. „Ég held mjög mikið upp á það form. Það er eiginlega hin fullkomna hljóðfæraskipan,“ segir hún og bætir við hlæjandi að máski nái hún aldrei að semja „hinn fullkomna strengjakvartett“ en það sé í það minnsta draumurinn. Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 20.
Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fleiri fréttir HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Kanye treður upp í Rússlandi Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Heiður að endurvekja falda perlu Palla Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Sjá meira