Viðskipti innlent

Bréf í Glitni seld fyrir 110 milljarða

Glitnir.
Glitnir.

Stærstu hluthafar Glitnis, fyrir utan FL Group, lögðu í gær lokahönd á samkomulag um sölu á öllum hlutum sínum í Glitni. Þetta eru Milestone undir forystu Karls Wernerssonar og Einar Sveinsson, formaður stjórnar bankans, og aðilar tengdir honum.

Alls skipta hlutir fyrir 110 milljarða króna um hendur. Unnið var að því að fínpússa samkomulagið en samkvæmt heimildum lá það fyrir í stórum dráttum síðdegis í gær. Gera má ráð fyrir að samkomulagið hafi verið undirritað eftir að blaðið fór í prentun.

Við söluna innleysir Milestone milli 45 og 50 milljarða hagnað fyrir utan fjármagnskostnað, sem er Íslandsmet af innlendri eign og af svipaðri stærðar­gráðu og innleystur hagnaður Björgólfs Thors Björgólfssonar af sölu í tékkneska símafyrirtækinu cRA.

Kaupandi hlutanna er Kaupþing banki, sem mun miðla bréfunum áfram til nýrra fjárfesta sem koma að bankanum. Einar Sveinsson og tengdir aðilar innleysa einnig verulegan hagnað. Kaup þeirra á hlutum í félaginu voru í kringum gengið sjö en verðmæti hlutarins hefur fjórfaldast frá kaupum.

Þreifingar hafa verið á milli manna eftir að snurða hljóp á þráðinn í samskiptum stærstu hluthafa.

FL Group gerði kröfu um aukin völd í bankanum en Einar og Mile­stone vildu halda dreifingu í hópnum og að enginn hluthafi tæki afgerandi forystu. Niðurstaða þeirra varð sú að hreinlegast væri í stöðunni að selja hluti sína og einbeita sér að öðrum verkefnum.

Ekki eru neinar áætlanir uppi um skiptingu á eignum bankans eða breytingu á yfirstjórn. Helstu breytingar á bankanum gætu orðið að aukið vægi yrði á fjárfestingarbankastarfsemi í Bretlandi.

Samkvæmt heimildum munu seljendur mynda nýtt félag og kaupa hlut af því sem selt var og því ekki hverfa alveg úr hópi hluthafa bankans.

Gert er ráð fyrir að nokkrir erlendir aðilar komi að hluthafahópi bankans, svo sem Tom Hunter, sem þegar er í hluthafahópi Glitnis, og fleiri viðskipta­félagar Baugs í Bretlandi. Auk þess muni innlendir aðilar sem fjárfest hafa með Baugi og FL Group kaupa hlut í bankanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×