Eins og örlögin knýi dyra 2. apríl 2007 10:00 Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tónleika í Glerárkirkju á skírdag og flytur þá Örlagasinfóníuna eftir Beethoven og fiðlukon-sert eftir Max Bruch. Einleikari á fiðlu er Ari Þór Vilhjálmsson og stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson. Örlagasinfónían er eitt dáðasta tónverk tónlistarsögunnar og upphafsstefið þekkir hvert mannsbarn en haft er eftir tónskáldinu sjálfu að í því sé líkt og örlögin sjálf berji dyra. Verkið er mjög kraftmikið og hristir upp í hverjum sem er en er jafnframt mjög aðgengilegt. Eftir Max Bruch verður fluttur konsert í g-moll fyrir fiðlu og hljómsveit. Fiðlukonsertinn er hugljúf tónsmíð en gerir miklar kröfur til einleikarans. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er nú á sínu fjórtánda starfsári. Kjarni hljómsveitarinnar hefur frá upphafi verið kennarar við Tónlistarskólann á Akureyri og hópur hljóðfæraleikara sem býr og starfar á landsbyggðinni. Á þessum tónleikum kemur einnig hópur hljóðfæraleikara af Reykjavíkursvæðinu til liðs við hljómsveitina.
Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira