Dauðadómur kveðinn upp yfir Saddam Hússein 5. nóvember 2006 09:26 Saddam Hússein var dæmdur til dauða með hengingu nú í morgun. MYND/AP
Saddam Hússein, fyrrverandi forseti Íraks, var í morgun dæmdur til dauða fyrir glæpi gegn mannkyninu. Samkvæmt dómsorði verður hann hengdur. Dómurinn í morgun var kveðinn upp í fyrsta kærumálinu gegn forsetanum en hann var ákærður fyrir aðild að morðum á 148 manns í bænum Dujail árið 1982. Sjíar eru þar í meirihluta. Forsetinn fyrrverandi mun hafa fyrirskipað morðin eftir að reynt var að ráða hann af dögum. Sex til viðbótar voru ákærðir í málinu. Tveir voru dæmdir til dauða, þrír voru dæmdir í 15 ára fangelsi og einn sýknaður. Viðbrögð við dómnum hafa verið blendin. Súnní múslimar, en það er trúflokkur Saddams, eru honum mótfallnir og gæti úrskurðurinn aukið á ofbeldi milli trúarflokka í Írak. Margir mannréttindahópar hafa líka sagt að réttarhöldin hafi verið gölluð og að laga þurfi dómstólinn fyrir næstu mál. Viðbrögð Saddams við dómnum voru einföld: "Allahu Akbar!" (Guð er mikilfenglegastur!) og "Lengi lifi þjóðin!". Lögfræðingar Saddams sögðu réttarhaldið farsa og kölluðu dómstólinn ólöglegan svikadómstól skapaðan af Bandaríkjamönnum og þessvegna hefði réttarhaldið aldrei getað verið sanngjarnt.
Erlent Fréttir Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira