Innlent

Fimmta fíkniefnamálið í Kópavogi á tveimur sólarhringum

Hass var tekið af mönnum í Hafnarfirði í nótt.
Hass var tekið af mönnum í Hafnarfirði í nótt. MYND/NM

Lögreglumenn úr Hafnarfirði og Kópavogi lögðu hald á fíkniefni við húsleit í báðum bæjunum í nótt. Í Hafnarfirði fundust 40 grömm af hassi og fimm grömm af amfetamíni í fórum tveggja manna og eru þeir grunaðir um sölumennsku.

Í Kópavogi fanst hinsvegar minna af efnum, sem talið er að ætluð hafi verið til einkaneyslu. Þetta er hins vegar fimmta fíkniefnamálið í Kópavogi á tveimur sólarhringum. Öllum hlutaðeigandi var sleppt að yfirheyrslum loknum undir morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×