Forsætisráðherra segir tækifæri í hvalaskoðun 20. október 2006 14:55 MYND/AP
Tækifæri í sjávarútvegi á Íslandi eru mörg, svo sem hvalaskoðun sem nú dafnar víða vel, sagði Geir H. Haarde, forsætisráðherra, í ræðu sinni á landsfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna í dag. Forsætisráðherra lagði í ræðu sinni áherslu á rétt Íslendinga til að nýta auðlindir hafsins en fulljóst væri að ástand stofna langreyðar og hrefnu væri það gott að óhætt hefði nú verið að hefja veiðar á þeim. Samtök hvalaskoðunarferða hafa gagnrýnt harðlega ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að hefja hvalveiðar. Geir ræddi einnig um kvótakerfið í ræðu sinni í dag. Hann sagði mikilvægt að ná sátt um núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi og að eyða þyrfti frekar óvissu um réttarstöðu útgerðarmanna þannig að ljóst væri að þau réttindi sem þeir keyptu á markaði yrðu ekki af þeim tekin. Stjórnvöld yrðu líka að reyna að draga úr aukaverkunum kvótakerfisins en í því felist meðal annars að leita leiða til að skapa nýja atvinnumöguleika á svæðum þar sem fiskiveiðikvóti er ekki lengur fyrir hendi. Ræða Geirs H. Haarde
Fréttir Innlent Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Innlent Fleiri fréttir Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Sjá meira