Grikkir og Bandaríkjamenn í undanúrslit 30. ágúst 2006 12:33 Carmelo Anthony skoraði 19 stig fyrir Bandaríkjamenn gegn Þjóðverjum NordicPhotos/GettyImages
Evrópumeistarar Grikkja og Bandaríkjamenn tryggðu sér í morgun sæti í undanúrslitum HM í körfubolta sem fram fer í Japan. Grikkir unnu Frakka auðveldlega 73-56 í morgun og í hádeginu lögðu Bandaríkjamenn Þjóðverja 85-65, þrátt fyrir að vera langt frá sínu besta í sóknarleiknum. Antonis Fotsis var stigahæstur í liði Grikkja gegn Frökkum með 14 stig, en þetta var lægsta stigaskor franska liðsins í keppninni til þessa. Evrópumeistararnir hafa ekki hreppt jafn margar fyrirsagnir og Spánverjar, Argentínumenn og Bandaríkjamenn það sem af er móti, en liðið er engu að síður komið í undanúrslit á HM í þriðja sinn í síðustu fjórum keppnum og er til alls líklegt. Bandaríkjamenn voru langt frá sínu besta í sóknarleiknum í sigrinum á Þjóðverjum, en það var góð rispa liðsins í þriðja leikhlutanum sem skóp sigurinn. Carmelo Anthony var stigahæstur í liði Bandaríkjamanna með 19 stig og LeBron James kom næstur með 13 stig. Dirk Nowitzki og Ademola Okulaja skoruðu mest Þjóðverja, 15 stig hvor. Það er því ljóst að það verða annars vegar Bandaríkjamenn og Grikkir og hinsvegar Argentínumenn og Spánverjar sem leika til undanúrslita á mótinu á föstudag. Á morgun verður keppt um 5.-8. sæti á mótinu, en þar mætast Litháar og Tyrkir fyrst og þá Frakkar og Þjóðverjar. Úrslitaleikurinn fer fram á sunnudaginn.
Erlendar Íþróttir Körfubolti Mest lesið Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Formúla 1 Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Liðsfélagi Arnórs með bitför eftir andstæðing Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Arteta vildi ekki tjá sig um rauða spjaldið Fótbolti Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Íslenski boltinn Atlético Madrid gerði enn eitt jafnteflið Fótbolti „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Íslenski boltinn