Lögin hans Jóns míns 17. júlí 2006 18:45 Gunni og Felix með plötuna Lögin hans Jóns míns
Gleðigjafarnir Gunnar Helgason og Felix Bergsson senda frá sér plötuna Lögin hans Jóns míns sem kemur út þann 21. júlí næstkomandi hjá Senu. Platan inniheldur bestu og vinsælustu lögin sem hinn kunni tónlistarmaður Jón Ólafsson hefur samið fyrir þá félaga í gegnum tíðina, enda er platan nefnd honum til heiðurs. Gunni og Felix hafa unniðsaman nær sleitulaust frá árinu 1993 og hafa börn þessa lands aldeilis fengið að njóta þess farsæla samstarfs. Þeir slógu í gegn sem umsjónarmenn Stundarinnar okkar í Sjónvarpinu ári síðar og hafa í kjölfarið sent frá sér myndabandsspólur, geislaplötur og hljóðsnældur. Ekki má gleyma að minnast á þær óteljandi skemmtanir út um allt land þar sem Gunni og Felix hafa kætt krakkana, stóra og smáa. Þeir hafa einnig komið fram á 21 geislaplötu í hlutverkum hundanna Trausts og Tryggs sem ættu að vera orðnir þekktustu hvuttar landsins. Gunna og Felix hefur tekist að sveipa sveitalífið, þjóðsögur og íslenska náttúru álíka ævintýraljóma í hugum barna nýrrar aldar og tölvuleikir og teiknimyndir. Og eldri kynslóðin skemmtir sér ekki síður við léttleikandi lög Jóns og hnyttnu textana eftir þá félaga og má segja að hinn brosandi og bjarti boðskapur þeirra Gunnars Helgasonar og Felix Bergssonar eigi við á hvert heimili. Upptökustjórn og útsetningar eru í höndum Jóns Ólafssonar. Söngur er fluttur af Gunna og Felix en rödd og söngur Ólafíu Hrannar Jónsdóttur kemur einnig við sögu ásamt barnakór. Jóhann Hjörleifsson spilar á trommur en Stefán Már Magnússon spilar á bassa og gítar ásamt Jóni Elvari Hafsteinssyni.
Lífið Menning Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira