Ætlar að stöðva átök hvað sem það kostar 31. maí 2006 13:00 Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, situr fund í ríkisstjórn landsins. MYND/AP
Forsætisráðherra Íraks segist ætla að stöðva átökin í landinu, hvað sem það kostar. Átökin í Írak hafa aldrei verið verið meiri og hafa tugir fallið í árásum síðustu tvo sólarhringa. Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, segist staðráðinn í að stöðva átök í landinu. Forsætisráðherrann segist tilbúinn að beita hörku til að stöðva hópa glæpa- og hryðjuverkamanna sem hindra hvað eftir annað olíuútflutning og önnur viðskipti í borginni. Átök í Írak hafa aldrei verið jafn blóðug og þau eru nú. Fimm lögreglumenn og 12 óbreyttir borgarar slösuðust er sprengja sprakk við varðstöð lögreglu í Mosul í norðurhluta Íraks í morgun. Þá hafa lík að minnsta kosti 40 manna, sem teknir höfðu verið af lífi, fundist víðs vegar í Írak síðasta sólarhringinn. Mikið hefur verið um að mönnum hafi verið rænt og þeir teknir af lífi frá því moska sjíta var sprengd í loft upp í febrúar og er talið að um hefndarmorð sjíta og súnníta sé að ræða. Þá féllu 46 manns í þremur sprengjutilræðum í landinu í gær. Í gærdag féllu 12 í sjálfsmorðssprengjuárás í bænum Hilla og níu í sprengjutilræði í bakaríi í austurhluta Bagdad. Og í gærkvöld féllu 25 manns og yfir sjötíu manns særðust þegar bílsprengja sprakk í grennd við grænmetismarkað í norðurhluta Bagdad. Alls særðust því á annað hundrað í tilræðunum þremur og hafa átökin ekki verið meiri síðan Bandaríkjamenn réðust inn í landið árið 2003. Forsætisráðherra landsins sagðist í gær reiðubúinn að beita hörku til að stöðva hópa glæpa- og hryðjuverkamanna í borginni. Hvernig hann ætlar að fara að, á þó enn eftir að koma í ljós.
Erlent Fréttir Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Leikur á hnífsegg í Brasilíu Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira