Sólsetur á gamlársdag 30. desember 2006 15:45 Kristinn Sigmundsson og tónlistarfólkið við æfingar í Hallgrímskirkju í vikunni MYND/Valli
Síðasta dag ársins efnir Listvinafélag Hallgrímskirkju að venju til tónleika skömmu eftir sólarlag þar sem árið er kvatt með söng og lúðrahljómi af Trompeteria-hópnum, Ásgeiri H. Steingrímssyni og Eiríki Erni Pálssyni trompetleikurum ásamt Herði Áskelssyni orgelleikara, en áralöng hefð er fyrir þessum áramótatónleikum fyrir fullu húsi. Við upphaf 25. starfsárs Listvinafélags Hallgrímskirkju gengur Kristinn Sigmundsson, einn dáðasti einsöngvari þjóðarinnar, til liðs við Trompeteriu. Kristinn syngur þrjár aríur frá fyrri hluta 18. aldar, hinu glæsilega blómaskeiði barokksins. Tvær þeirra eru meðal þekktustu bassaaría óratóríubókmenntanna og allar eru samdar sem samspil söngvarans og einleikstrompets. Þetta eru aríurnar Großer Herr, o starker König úr Jólaóratóríu Bachs, Wacht auf, ihr Adern und ihr Glieder úr kantötu hans Unser Mund sei voll Lachens og arían The Trumpet shall Sound úr óratoríunni Messías eftir Händel. Strengjaleikarar leika með í aríum Kristins. Að auki hljómar á tónleikunum Rondeau eftir Jean Joseph Mouret sem starfaði við frönsku hirðina og óperuhús Parísar, Tokkata í D-dúr eftir Alessandro Scarlatti og hið kunna Adagio í g-moll eftir Tomaso Albinoni. Öll þekkt hátíðarverk. Kristinn hefur sungið fjölda óperuhlutverka við helstu óperuhús Evrópu og Ameríku hin síðari ár; sungið með þekktum hljómsveitarstjórum, James Levine, Riccardo Muti, Bernard Haitink, Sir Colin Davis og fleirum; tekið þátt í erlendum óperu- og óratóríuhljóðritunum auk þess sem hann hefur hljóðritað tvo ljóðaflokka Schuberts, Svanasöng og Vetrarferðina, ásamt Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara. Samstarf hans við Hallgrímskirkju stendur á gamalli rót: Kristinn syngur á fyrstu jólahljómplötu Mótettukórs Hallgrímskirkju, Ég held glaður jól árið 1985. Samstarf Ásgeirs, Eiríks Arnar og Harðar hófst árið 1993. Á síðasta ári komu þeir fram í hinum fræga tónleikasal Fílharmóníunnar í Pétursborg. Næsta ár verða þeir gestir á orgeltónlistarhátíð í Suður-Þýskalandi. Ásgeir og Eiríkur leika báðir með Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess að vera virkir í tónlistarlífinu almennt. Eftir framhaldsnám var Hörður ráðinn organisti og kantor Hallgrímskirkju árið 1982 þar sem hann hefur starfað síðan. Hann stjórnar Mótettukór Hallgrímskirkju og Schola cantorum og er listrænn stjórnandi Kirkjulistahátíðar og Sumarkvölds við orgelið. Hörður var borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2002, hefur hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin og tvisvar verið valinn tónlistarmaður ársins af DV. Þá hefur hann nýverið verið skipaður söngmálastjóri þjóðkirkjunnar. Hörður hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2006.
Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Pétur Gunnarsson sæmdur heiðursdoktorsnafnbót Menning Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira