Unnið gegn jólastressinu 13. desember 2006 18:00 Eyjólfur Eyjólfsson óperusöngvari Kemur Hafnfirðingum í jólaskap.
Það verður rólegheitastemning í Hafnarfjarðarkirkju í kvöld en þar verður boðið upp á ókeypis tónleika í jólaamstrinu. Tónleikarnir bera yfirskriftina „Jólasöngvar“ en skipuleggjandi þeirra, Antonía Hevesi, hefur staðið að sambærilegum jólatónleikum fyrir jólin síðan hún hóf störf sem organisti við kirkjuna. Antonía hættir sem organisti um áramótin og eru þetta því síðustu „Jólasöngvar“ hennar að sinni. Gestur Antoníu er hafnfirski tenórinn Eyjólfur Eyjólfsson en þau hafa starfað töluvert saman. Auk þess mun leynigestur líta inn og leggja sitt af mörkum við dagskrána. Á efnisskrá kvöldsins eru klassísk og hátíðleg jólalög á borð við Panis angelicus eftir C. Franck, Ave Maria eftir Schubert, Bach-Guonud og Sigvalda Kaldalóns og Ó, helga nótt eftir A. Adams. „Við reynum að hjálpa fólki að slappa af í jólastressinu og ef einhver sofnar í kirkjunni munum við líta á það sem hrós,“ segir Antonía og kímir. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og eru þeir öllum opnir.
Mest lesið Ísland fékk stig frá þessum löndum Lífið Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Lífið Ein óvæntustu úrslit Eurovision-sögunnar Lífið 50+: „Það þykir ekki töff að segjast vera einmana“ Áskorun Voru í sjötta sæti í undankeppninni Lífið Vaktin: Stórsigur Austurríkis og VÆB fengu 33 stig Lífið Krakkatían: Eurovision, jarðskjálftar og dvergar Lífið Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Lífið Klúróvision í kvöld: „Þetta fer svo fyrir brjóstið á okkur að við förum úr fötunum“ Lífið Austurríki sigurvegari Eurovision 2025 Lífið Fleiri fréttir Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira