Hafa sagt sig úr stjórn Íraks 30. nóvember 2006 05:00 Jórdaníukonungur og forsætisráðherra Íraks hittust í Jórdaníu í gær, en Bush Bandaríkjaforseti hittir þá hvorn í sínu lagi. MYND/AP
Fylgismenn sjíaklerksins Muqtada al-Sadrs á þingi og í ríkisstjórn Íraks hafa dregið til baka stuðning sinn við ríkisstjórn landsins. Með þessu vilja þeir mótmæla því að Nouri al-Maliki forsætisráðherra skuli fara á fund George W. Bush Bandaríkjaforseta í Jórdaníu. Fundur þeirra Bush og al-Malikis „ögrar tilfinningum írösku þjóðarinnar og er brot á stjórnarskrárbundnum réttindum Íraka,“ að því er segir í yfirlýsingu frá þrjátíu þingmönnum og fimm ráðherrum, sem allir eru hliðhollir Sadr. Bush hélt í gær rakleiðis frá leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Lettlandi til Jórdaníu þar sem hann á fundi bæði með al-Maliki og Abdullah Jórdaníukonungi. Aðalefni fundanna er að finna leiðir til að draga úr átökum í Írak, átökum milli sjía og súnníta sem hafa verið svo harðskeytt undanfarið að margir vilja segja að borgarastyrjöld sé skollin á í landinu. Stuðningsmenn Sadrs hótuðu því fyrir fáeinum dögum að segja sig úr stjórn landsins láti al-Maliki, sem er sjálfur sjíi, verða af því að hitta Bush að máli. „Írakstjórn á að semja við Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, ekki við leiðtoga þess lands sem hefur hertekið Írak,“ sagði Falih Hassan, þingmaður úr hópi Sadrs.
Erlent Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sjá meira