Erdogan æfur vegna frestunar 30. nóvember 2006 04:00 Páfi staddur við hús í Efesus á Tyrklandi þar sem María mey á að hafa búið síðustu æviárin. MYND/AP
Benedikt sextándi páfi lýsti sig í gær fylgjandi því að Tyrkland fái aðild að Evrópusambandinu. Páfi er í opinberri heimsókn í Tyrklandi í þeim tilgangi að lægja reiðiöldur múslima gagnvart sér og stuðla að sáttum milli kristinna og múslima. Hugsanleg aðild Tyrklands að Evrópusambandinu er vægast sagt umdeild, jafnt í Tyrklandi sem í aðildarríkjum Evrópusambandsins. Tyrknesk stjórnvöld hafa á síðustu árum sótt það stíft að fá aðild að Evrópusambandinu, en strandað hefur á ýmsu, nú síðast á kröfu Evrópusambandsins og Kýpur-Grikkja um að Tyrkir veiti Kýpur-Grikkjum aðgang að höfnum og flugvöllum í Tyrklandi. Í gær lagði Olli Rehn, sem fer með stækkunarmál ESB í framkvæmdastjórn sambandsins, að aðildarviðræðum við Tyrkland verði að hluta frestað vegna deilunnar, þar sem Tyrkir hafa til þessa ekki viljað veita Kýpur, sem er fullgilt aðildarríki í Evrópusambandinu, þennan aðgang. Endanleg ákvörðun um hvort aðildarviðræðum verði frestað vegna þessarar deilu verður þó ekki tekin fyrr en á leiðtogafundi Evrópusambandsins um miðjan desember. Recep Tayyin Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, brást í gær ókvæða við þessari tillögu Rehns. „Við látum engan troða á réttindum okkar,“ sagði hann.
Erlent Mest lesið Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Erlent Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Innlent Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Innlent „Svaraðu spurningunni“ Innlent Marius látinn laus Erlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Enn í lífshættulegu ástandi Innlent „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Innlent Fleiri fréttir Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Sjá meira