Raftæki fara úr búðinni í ruslið á tveimur árum 19. október 2006 07:30 ÞÓRIR ÖRN SIGVALDASON Í GóÐA HIRÐINUM Magnað að sjá hverju fólk er að henda. MYNDGLH
Líftími margra raftækja er ekki langur, þetta vita neytendur af eigin raun. Hver á til dæmis tíu ára gamlan farsíma eða tölvu? Heldurðu að þú verðir ennþá að nota mp3-spilarann þinn eftir fimm ár? Borgar sig að fara með bilaðan hlut í viðgerð eða er betra, og kannski líka ódýrara, að fá sér bara nýjan? Ekki eru til neinar opinberar tölur yfir líftíma raftækja og samkvæmt starfsmönnum í verslunum hér er þetta mjög mismunandi eftir tækjum. Þannig má búast við að góð þvottavél endist í 12-15 ár og þurrkari jafnvel lengur, en þegar rafeindatæki eiga í hlut er allt annað uppi á teningnum. Í Svíþjóð er reynslan sú að mikill meirihluti fólks endurnýjar farsímann sinn innan tveggja ára. Varla erum við eftirbátar Svía í þessum efnum enda höfum við löngum talist neysluglöð þjóð. Algengasta bilunarorsök á farsímum á Íslandi eru rakaskemmdir í kjölfar illrar meðferðar, til dæmis ef sími er hafður í kulda. Ef farsíminn gleymist úti í bíl yfir nótt er til dæmis ekki von á góðu. Annað vinsælt rafeindatæki eru plasmaflatskjáirnir, en síðustu jól voru sannkölluð flatskjáajól. Framleiðendur segja líftíma plasmaskjáa á bilinu 60-80.000 tímar, en lítil reynsla er komin á tækin ennþá enda tæknin nýleg. „Þessi bransi hefur breyst mikið,“ segir Þór Ólafsson hjá viðgerðaverkstæðinu Sóni. Hann ætti að vita það enda með tuttugu ára starfsreynslu. „Sumt, eins og magnarar, er í sama gæðaflokki og áður, en mekanísk tæki eins og DVD- og CD-spilarar eru yfirleitt orðin ódýrari tæki. Þetta er ekki sterk framleiðsla. Allt úr plasti og eiginlega einnota dót því það virðist vera stefna fyrirtækjanna að framleiða ekki varahluti í þetta. Einn daginn þegar allir ruslahaugar heimsins verða orðnir fullir af ónýtum raftækjum fara menn kannski að hugsa sinn gang.“ Tæki sem seld eru á Íslandi eru langflest með tveggja ára ábyrgð og Þór segir að fólk komi oftast með tækin í viðgerð ef ábyrgðin er ennþá á þeim. „Þá metum við hvort það borgi sig að gera við. Það er sáralítið um það að kúnninn leggi sjálfur í viðgerðarkostnað.“ Þetta er skiljanlegt enda er nú til dæmis hægt að fá DVD-spilara á undir 4.000 kall, sem er álíka og viðgerðin kostar, ef ekki minna. Raftæki sem hent er enda oft hjá Góða hirðinum. Um tveir gámar af dóti berast daglega. Þórir Örn Sigvaldason er starfsmaður Góða hirðisins. Hann segir magnað að sjá hverju fólk er að henda. „Núna var til dæmis að koma inn Whirlpool þvottavél sem er örugglega ekki nema 2-3 ára gömul,“ segir hann. „Við fáum ótrúlega heillegt dót, fólk er jafnvel bara að losa sig við tæki eins og ísskápa eða uppþvottavélar þegar það skiptir um eldhúsinnréttingu og gömlu tækin passa ekki við nýju innréttinguna. Það er eins og fólk nenni ekki lengur að setja smáauglýsingar í blöðin og finnist bara auðveldara að henda þessu. “ Þórir segist sárasjaldan fá farsíma inn, þeim sé bara hent þegar þeir bila. „Gamaldags“ tölvuskjáir (ekki flatskjáir) standa hins vegar í röðum á 300 kall stykkið. „Fólk hefur verið að kaupa þetta hérna hjá okkur til að fara með í búðirnar þegar þær bjóða afslátt af nýjum skjám ef þeim gamla er skilað,“ segir Þórir og bætir við: „Nú virðist vera vinsælast að henda safapressum. Við höfum allavega fengið svaka magn af þeim upp á síðkastið. Svo fara flatskjáirnir örugglega að detta inn á þessu ári eða næsta.“
Innlent Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Sjá meira