Samkomulag um sáttatilboð 2. júní 2006 07:30 Margaret Beckett Utanríkisráðherra Bretlands í Vínarborg í gær. fréttablaðið/ap
Stórveldin fimm sem hafa neitunarvald í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, auk Þýskalands, náðu í gærkvöld samkomulagi um sáttatilboð til Írana. Tilboðið felur í sér ýmsan efnahagslegan ávinning fyrir Írana gegn því að þeir falli frá starfsemi sem gæti gert þeim kleift að koma sér upp kjarnorkuvopnum, en refsiaðgerðir samþykki þeir það ekki. Margaret Beckett, utanríkisráðherra Bretlands, tilkynnti þetta eftir fund ráðherra stórveldanna sex í Vínarborg. Fulltrúar Bandaríkjastjórnar sögðust á miðvikudag reiðubúnir til að taka þátt í beinum viðræðum við Íransstjórn, að því gefnu að hún hætti auðgun úrans. Í þessu fólst stefnubreyting af hálfu Bandaríkjastjórnar, þar sem hún hefur í áratugi ekki verið tilbúin til að eiga bein samskipti á æðstu stigum við klerkastjórnina í Teheran. Stórveldafundur Utanríkisráðherrar stórveldanna sex við samningaborðið í Vínarborg í gær. fréttablaðið/ap En ráðamenn í Teheran hafa engan bilbug látið á sér finna. "Íran fagnar viðræðum með sanngjörnum skilyrðum, en við munum ekki gefa frá okkur réttinn [til nýtingar kjarnorkunnar]," hafði íranska ríkissjónvarpið eftir Manouchehr Mottaki utanríkisráðherra. Þessi ummæli féllu áður en samkomulagið um sáttatilboð stórveldanna náðist. Samkomulagið þykir sæta tíðinum ekki síst fyrir þær sakir að það sameinar ekki aðeins vesturveldin fjögur, Bandaríkin, Bretland, Frakkland og Þýskaland, heldur einnig Rússland og Kína að baki tilraunum alþjóðasamfélagsins til að fá Írana ofan af kjarnorkuáformum sínum
Erlent Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira