Vilja slá á gagnrýni 2. júní 2006 06:45 Sergei Lavrov
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, ítrekaði á mánudag gagnrýni Rússlandsstjórnar á Evrópuráðið, nú er Rússar eru í fyrsta sinn að taka við formennsku í ráðinu. Evrópuráðið, sem 46 Evrópuþjóðir eiga aðild að og hefur fremur öðru því hlutverki að gegna að standa vörð um Mannréttindasáttmála Evrópu, er fyrsta samevrópska stofnunin sem Rússar veita forystu. Búist er við að rússneskir ráðamenn muni notfæra sér formennskumisserið til að koma böndum á gagnrýni þá sem ráðið hefur ítrekað beint gegn Rússum frá því þeir fengu aðild að ráðinu fyrir áratug. Lavrov sakar ráðið um tvískinnung, að það beiti tvöföldum mælikvarða er það gagnrýnir Rússa fyrir hluti sem látnir væru óátaldir hjá öðrum aðildarþjóðum. Ráðið hefur einkum gagnrýnt rússnesk stjórnvöld fyrir gerðir þeirra í Tsjetsjeníu, fyrir meint mannréttindabrot af hálfu rússnesku lögreglunnar, svo og fyrir brot gegn prent-, félaga- og trúfrelsi sem og réttindum minnihlutahópa. Rene van der Linden, formaður þingmannasamkomu Evrópuráðsins, sagði í yfirlýsingu að formennskumisseri Rússa gæfi þeim tækifæri til að "sýna að Rússland sé hluti af lýðræðislegri Evrópu, á jafnræðisgrundvelli."
Erlent Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira