Magloire til Milwaukee Bucks 27. október 2005 12:15
Milwaukee Bucks var duglegt á leikmannamarkaði NBA í sumar og fékk meðal annars fyrsta valréttinn í nýliðavalinu. Í gærkvöldi nældi félagið svo í enn einn leikmanninn þegar það fékk til sín miðherjann Jamaal Magloire frá New Orleans, í skiptum fyrir framherjann Desmond Mason og valrétt í nýliðavalinu á næsta ári. Magloire er öflugur miðherji og á að baki stjörnuleik, en gat lítið spilað með Hornets í fyrra vegna meiðsla. Árið þar á undan skoraði hann að meðaltali 13,6 stig í leik og hirti rúm 10 fráköst í leik. Hann er 27 ára gamall. Desmond Mason er framherji og mikill íþróttamaður, sem á meðal annars að baki sigur í troðkeppninni um stjörnuhelgina. Mason er 28 ár og er á sínu sjötta ári eins og Magloire, en hann hefur bætt sig í stigaskorun á hverju ári síðan hann kom inn í deildina á sínum tíma og var með rúm 17 stig að meðaltali í fyrra. Valrétturinn sem Milwaukee fær á næsta ári gæti einnig orðið verðmætur, því hann er án formerkja og þar sem búist er við að New Orleans verði neðarlega í töflunni í ár, gæti fengist ágætur nýliði fyrir það næsta sumar.
Erlendar Fréttir Íþróttir Körfubolti NBA Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Dagskráin: Doc Zone en fyrst stórleikur Chelsea og Man. Utd Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Fjórði sigur Valskvenna í röð Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Sænska ríkisstjórnin vill stöðva þátttöku Rússa á HM Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Rosalegt pílukvöld á Selfossi „Mér finnst ég vera byggður öðruvísi“ „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Emil vill vera hjá Rúnari og hvað segir mamma hans Magga? Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sjá meira