Sport

Luque á leið til Newcastle

Framherjinn Albert Luque hjá Deportivo la Corunia á Spáni, mun að öllum líkindum ganga í raðir Newcastle í dag, en hann mun gangast undir læknisskoðun hjá félaginu seinnipartinn eftir að spænska liðið samþykkti tilboð Newcastle upp á 9,5 milljónir punda í leikmanninn í gærkvöldi. Viðræður um kaup á leikmanninum höfðu slitnað í vikunni, en Newcastle breytti tilboði sínu í gær og í kjölfarið var það samþykkt af spænska félaginu. Þessi tíðindi gætu rennt stoðum undir orðróminn um að Michael Owen muni enda hjá sínum gömlu félögum í Liverpool, en Newcastle gerði sem kunnugt er risatilboð í hann í gær og gáfu honum stuttan umhugsunarfrest.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×