Sport

Martin vill í landsliðið á ný

Orðrómur er uppi um það á Englandi að gamla brýnið Nigel Martyn gæti orðið kallaður inn í enska landslið á ný eftir hrakfarir David James á Parken á dögunum. Martyn er nálægt fertugu, en hefur verið mjög traustur á milli stanganna hjá Everton síðan hann gekk til liðs við félagið fyrir um tveimur árum. "Ég myndi að sjálfssögðu ekki neita því ef kallið kæmi, því það er heiður fyrir hvern knattspyrnumann að leika fyrir þjóð sína," sagði Martyn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×