Sport

Kóreumaður til Tottenham

Suður-Kóreumaðurinn Lee Young-Pyo hjá PSV Eindhoven í Hollandi er sagður vera á leið til Tottenham Hotspurs á Englandi fljótlega, en Pyo er öflugur vinstri bakvörður og er fasta maður í landsliði Kóreu. Young-Pyo er með ákvæði í samningi sínum sem gerir honum kleift að yfirgefa PSV fyrir um aðeins eina og hálfa milljón punda og hann er sagður æstur í að feta í fótspor landa síns hjá Manchester United með því að fá tækifæri til að leika á Englandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×