Sport

O´Leary æfur út af rauða spjaldinu

David O´Leary, knattspyrnustjóri Aston Villa, var ekki kátur með rauða spjaldið sem Nolberto Solano fékk gegn Portsmouth í gærkvöldi og ætlar að áfrýja dómnum. "Nobby er ekki grófur leikmaður, hann rétt kom við manninn, sem lét sig falla eins og hann hefði verið skotinn. Ég mun ekki una þessari vitleysu" sagði O´Leary, en Solano var vikið af leikvellli eftir aðeins tíu mínútna leik fyrir að gefa andstæðingi sínum olnbogaskot.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×