Sport

Luque fer ekki til Newcastle

Lið Deportivo la Corunia á Spáni hefur neitað lokatilboði Newcastle í sóknarmanninn Albert Luque og því er ljóst að ekkert verður af för hans til Englands eins og til stóð. "Liðunum bar enn nokkuð í milli og ef Newcastle hefði boðið þá upphæð sem við vildum fá fyrir leikmanninn í upphafi, hefði þetta ekki verið neitt mál," sagði talsmaður spænska liðsins, en þessi munur ku hafa hljóðað upp á um eina og hálfa milljón punda. Newcastle er því enn í miklum framherjavandræðum og hefur byrjað leiktíðina illa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×