Sport

David James með tvö markmið

David James, markvörður Manchester City og enska landsliðsins, segist hafa sett sér tvö skýr markmið fyrir keppnistímabilið í vetur, að komast í Evrópukeppnina með Manchester City og að vinna sér fast sæti í enska landsliðinu á ný. James mun að öllum líkindum eiga erfitt með að vinna sér sæti í enska landsliðinu á ný, eftir að hann var skelfilegur og illa undirbúinn í tapinu fyrir Dönum í síðustu viku. Þá þarf hann einnig að slá út Paul Robinson hjá Tottenham Hotspurs, sem hefur verið mjög traustur á báðum vígstöðvum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×