Sport

Robben er ekki í hundakofanum

Jose Mourinho hefur gefið það út að þó Arjen Robben verði ekki í byrjunarliði Chelsea gegn West Brom á miðvikudaginn, sé það ekki vegna þess að hann sé í hundakofanum vegna yfirlýsinga í fjölmiðlum um helgina. Robben gagnrýndi leikaðferð þjálfara síns í viðtali fyrir leikinn við Arsenal, en Mourinho segir stóran mun á máli Robben eða Ricardo Carvalho, fyrr í vikunni. "Ricardo sagði eitt við mig og svo eitthvað allt annað við fjölmiðla og það gengur ekki. Robben hinsvegar hefur alltaf verið hreinskilinn við mig og það sem hann sagði í fjölmiðlum er bara hans skoðun og hann var búinn að koma henni á framfæri við mig áður, svo að hans mál er öðruvísi. Ákvörðun mín að hafa hann á bekknum á miðvikudaginn hefur ekkert með þetta að gera," sagði Mourinho.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×